Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness efnir til keppni um flottustu ljósmyndina af einhverju af þeim stórfenglegu fyrirbærum sem við sjáum á himninum. Keppnin er opin öllum, ungum sem öldnum, áhugamönnum sem atvinnumönnum. Myndefnið má vera af ýmsum toga, t.d. tunglið, sólin, Vetrarbrautarslæðan, plánetur eða fjarlægar stjörnuþokur. Skilyrði er að myndin sé tekin veturinn 2018 – 2019. Dómnefnd velur síðan þrjár bestu myndirnar og hljóta verðlaunahafar vegleg verðlaun frá Hótel Rangá, Reykjavík Foto og Merkingu.

Click here for English.

*Myndin hér að ofan er vinningsmyndin frá 2017. Myndina tók Guðjón Ottó Bjarnason.

Lesið reglur hér.

Skila skal myndum á http://astrokeppni.com. Skilafrestur er kl. 23:59 þann 15. maí 20. maí 2019 – Hámark 3 myndir á mann.

Dómnefndina skipa Snorri Þór Tryggvason, Babak Tafreshi og Sigríður Kristjánsdóttir.

Snorri Þór Tryggvason er heimspekingur, hönnuður og kortagerðarmaður. Hann hefur á undanförnum árum komið sér í fremstu röð næturljósmyndara á Íslandi með eftirtektarverðum myndum og myndskeiðum af hinum ýmsum fyrirbærum næturhiminsins, ekki síst af norðurljósum. Ástríða Snorra Þórs er að fanga fegurstu augnablik náttúrunnar að degi sem að nóttu, auk þess að elta hjólreiðamenn og -konur upp um fjöll og firnindi og festa þau á filmu bæði í leik og keppni. Lesa má nánar um Snorra og skoða myndir eftir hann á http://www.snorrithorphotography.com/

Babak Tafreshi er verðlaunaljósmyndari sem vinnur fyrir National Geographic. Hann hefur myndað næturhimininn frá unga aldri og hefur ferðast víða til þess að mynda viðfangsefni sín. Hann er einnig vísindablaðamaður og stofnandi The World at Night, sem er hópur 40 ljósmyndara frá 25 löndum sem helga sig því að tengja fólk við fegurð næturhiminsins í gegnum myndir sínar. Lesa má meira um Babak og verkefni hans ásamt því að skoða myndir eftir hann á https://babaktafreshi.com/.

Sigríður Kristjánsdóttir er formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Hún er jarðeðlisfræðingur að mennt og vinnur við jarðskjálftarannsóknir hjá Íslenskum orkurannsóknum. Hún er einnig með meistarapróf í klassískum fagottleik. Áhugi hennar á stjörnuhimninum hefur fylgt henni frá blautu barnsbeini og að hennar mati er Hubble Ultra-Deep Field myndin ein áhrifaríkasta ljósmynd mannkynssögunnar.