Ekki er gerð nein krafa um þekkingu á stjörnufræði eða að félagar eigi sjónauka,heldur er félagið hugsað fyrir alla þá sem hafa áhuga á stjörnufræði um allt land.
Félagsfundir eru haldnir í hverjum mánuði yfir veturinn, auk annarra viðburða. Félagið sendir reglulega út fréttabréf og gefur út veglegt blað á u.þ.b. tveggja ára fresti. Félagar geta skráð sig á póstlista félagsins þar sem við látum vita af viðburðum og því sem sjá má á himninum og félagið rekur einnig spjallborð á netinu. Félagar fá einnig afslátt að byrjendanámskeiðum á vegum félagsins.
Öll starfsemin byggist á sjálfboðaliðavinnu og allt sem er afgangs af námskeiðum og annarri starfsemi rennur í sjóð til þess að fjármagna fyrirhugaða stjörnustöð félagsins í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.